🐻 Jón
fös 4. september · Ástrós
Vikupóstur Y
Muna- Skipulagsdagur á föstudaginn 11. september.
Jæja enn önnur vikan liðin, tíminn flýgur þegar það er gaman! Fyrsta vikan í agalotunni fór vel af stað og hefur hópurinn verið að þjappa sér vel saman. Það er mikil samvinna og vinskapur innan hópsins sem er mjög gaman að sjá.
Í vikunni æfðum við okkur að segja frá og sögðum meðal annars frá okkur sjálfum, fjölskyldum okkar og hvað við okkur finnst gaman að gera utan leikskóla. Sömuleiðis var það æfing í því að hlusta á vini okkar tala án þess að grípa fram í fyrir þeim. Margt skemmtilegt kom í ljós eins og skemmtilegar fótbolta- og hokkíæfingar.
Við máluðum líka mynd og strax kom ósk frá hópnum fyrir næsta málningarverkefni sem bíður næstu viku.
Göngutúrarnir okkar hafa gengið vonum framar enda algjörir meistarar þessir drengir.
Að lokum minni ég á skipulagsdag á föstudag í næstu viku þann 11. september.
Njótið helgarinnar,
Ástrós
Sent from Outlook for iOS<https://aka.ms/o0ukef>
🐻 Jón
fös 28. ágúst · Ástrós
Vikupóstur 24.-28.ágúst
Muna- Loturnar byrja í næstu viku, fyrsta er Agalotan.
- Nýjar afleysingar eru Elsa Bjarney, Ingibjörg Lovísa, Katla Huld og Lilja Mekkín.
Hæhæ kæru foreldrar,
Viðburðarík vika að baki; Við erum búin að æfa okkur í körfubolta, baka köku, taka vinkonuhitting með vinkonum okkar á græna kjarna, fara í göngutúr í ævintýraskóg, spila og leika fullt úti í bæði sól og rigningu☀️🌧️
Við fengum vinkonur svo líka í heimsókn í nónhressingu og svo förum við í heimsókn til þeirra í næstu viku.
Loturnar byrja svo í næstu viku en sú fyrsta er Agalotan. Lotan er 4 vikur og í henni leggjum við áherslu á virðingu, hegðun, kurteisi og framkomu.
Við erum með nýjar afleysingar í húsi. Þær heita Elsa Bjarney, Ingibjörg Lovísa, Katla Huld og Lilja Mekkín. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar í hópinn okkar!
Njótið helgarinnar
Á og gula gengið💛
Sent from Outlook for iOS<https://aka.ms/o0ukef>
🐻 Jón
fös 21. ágúst · Ástrós
Y hópur - vikan 17.-21.ágúst
Muna- Afmæli Sæþórs Jaka á mánudaginn, 22. ágúst.
- Jón er í Y hóp.
Hæhæ kæru foreldrar,
Fyrri hluti vikunnar fór í að þjappa hópnum saman, spilastundir og útileiki, það var mikið fjör. Svo höfum við haldið áfram göngutúraæfingum sem hafa verið krefjandi fyrir hópinn en það er allt að smella saman hjá okkur. Ég er búin að vera í fríi í dag og í gær svo það hefur verið afleysing með hópnum. Á mánudaginn munum við svo halda upp á afmæli en það er hann Sæþór Jaki sem á afmæli um helgina og verður 4 ára🥳
Helgarkveðja að sunnan,
Ástrós
Sent from Outlook for iOS<https://aka.ms/o0ukef>
🐻 Jón
fös 14. ágúst · Ástrós
Y hópur 10.-14. ágúst
Muna- Ástrós er nýr kennari í Y hópnum.
- Hópurinn hefur verið mikið úti og í frjálsum leik.
- Göngutúrar hafa verið haldnir með X hóp.
- Hópurinn hefur verið að æfa ríma, klappa atkvæði og sönglög.
Hæhæ kæru foreldrar,
Nú eru hóparnir klárir eins og þeir verða í vetur og verð ég, Ástrós, með Y hópinn.
Ég vil byrja á að segja ykkur örsnöggt aðeins um mig en ég er nýlega byrjuð að vinna aftur eftir fæðingarorlof og er nýr kennari á Hólmasól. Ég er menntaður kennari og hef þónokkra starfsreynslu í leikskóla en enga innan Hjallastefnunnar. Linda og Gummi hafa leiðbeint mér helling og komið mér vel inn í stefnuna og svo verður mikill lærdómur í vetur.
Í hópatímum vikunnar höfum við verið mikið úti. Það hefur verið mikil orka í hópnum svo við höfum verið að fá útrásina í frjálsum leik. Við fórum í tvo göngutúra, einn með X hóp út á klappir við lögreglustöðina og þar var mikið stuð að æfa sig að klifra. Við höfum líka verið að æfa okkur að ríma, klappa atkvæði og nokkur sönglög svo það hefur verið mikið fjör.
Takk fyrir vikuna og njótið helgarinnar,
Ástrós og restin af gula genginu💛
Sent from Outlook for iOS<https://aka.ms/o0ukef>
🐻 Jón
fim 6. ágúst · Linda
Kjarnafréttir Gulikjarni
Muna- Lotuvinnan í Y-hópnum byrjar 31. ágúst.
- Foreldrar eru hvattir til að skoða foreldrahandbókina.
- Hópatímarnir munu innihalda málörvun, frjálsan leik og útiveru.
Hópatímarnir í Guli kjarna byrja rólega eftir sumarfrí. Lotuvinnan byrjar 31. ágúst.
Lesa allt ↓
Komiði sæl kæru foreldrar,
Gott að sjá öll eftir sumarfrí og okkur á Gulakjarna líst vel á hópinn sem verður hjá okkur í vetur! 🙂
Hópastarfið fer rólega af stað en lotuvinnan byrjar 31. ágúst. Hópatímarnir hafa einkennst m.a. af málörvun, frjálsum leik, útiveru og að kynnast nýjum vinum og hópstjórum betur.
Við héldum upp á afmæli þeirra drengja sem áttu afmæli í sumarfríinu en það voru þeir Gabríel (4 ára), Kári Kveldúlfur (5 ára) og Siggi (5 ára). Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju! <3
Hóparnir í vetur eru eftirfarandi:
X-hópur (hópstjóri Linda): Baldur Dýri, Björgvin Mói, Dagur, Flóki Leon, Guðmundur Darri, Hafþór Bjarni, Hreinn Atli Valdimar, Kári Kveldúlfur, Ragnar Nart og Sigurður Kr. Bergmann.
Y-hópur (hópstjóri Ástrós): Gabríel Ragnar, Ísar Nóel, Jón Hallur, Karl Míó, Kári Björn, Máni Hrafn, Muhammad og Sæþór Jaki.
Z-hópur (hópstjóri Gummi): Atlas Dagur, Bergvin Atli, Elmar Þorri, Hilmir Örn, Hrafnkell Dreki, Huginn Bent og Theodór Esjar.
Mig langar að benda ykkur á foreldrahandbókina okkar sem hefur að geyma mikið af gagnlegum upplýsingum, hef hlekk hér fyrir neðan! 🙂 Annars má alltaf heyra í okkur hópstjórunum!
https://holmasol.hjalli.is/h%C3%B3lmas%C3%B3l/fagefni%20%C3%A1%20vef/2023.h%C3%B3lmas%C3%B3l_foreldrahandb%C3%B3k.pdf
Með von um góða samvinnu í vetur,
Linda, Ástrós og Gummi
Hjallastefnan er félag á sviði uppeldis og menntunar sem starfrækir leikskóla og grunnskóla undir merkjum jafnréttis, lýðræðis og sköpunar. (https://www.hjalli.is/)
Þessi tölvupóstur ásamt fylgiefni kann að innihalda trúnaðarmál og er þá aðeins ætlaður þeim sem hann er sendur til. Öll önnur notkun er í slíku tilfelli óheimil sbr. 5. mgr. 47 gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003. This e-mail and its attachments may contain information which is confidential and is only intended for use by the intended recipient. (https://skolinn.is/email-disclaimer/)